Krönsí hafrakúlur



⌑ Samstarf ⌑
orkukúlur

Hér eru á ferðinni orkuríkar og góðar hafrakúlur sem snilld er að eiga í ísskápnum! Ég elska sætindi og finnst gott að eiga svona hollari bita í ísskápnum svo ég endi ekki alltaf í óhollustunni. Ég prófaði að nota All-Bran morgunkorn í kúlurnar og ég var búin að steingleyma hvað það er gott og hollt!

Það tekur enga stund að útbúa þessa mola og ég mæli með að þið prófið!

Hollt nammi

Krönsí hafrakúlur

Uppskrift dugar í 15-18 stk

  • 100 g Kellogg‘s All Bran
  • 80 g grófir hafrar
  • 40 g kókosmjöl
  • 1 msk. Síríus kakóduft
  • 1 msk. chiafræ
  • 140 g hnetusmjör
  • 50 g kókosolía (brædd)
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 40 g Síríus 70% súkkulaði
  1. Setjið All Bran í blandarann í um 15 sekúndur og hellið duftinu síðan í skál.
  2. Bætið öllum öðrum hráefnum nema 70% súkkulaði saman við og blandið vel saman.
  3. Kælið í hálfa til eina klukkustund og mótið/þjappið síðan saman í kúlur sem eru um ein matskeið á stærð.
  4. Bræðið 70% súkkulaðið og setjið það óreglulega yfir kúlurnar og kælið þar til súkkulaðið storknar.
  5. Geymið í kæli í vel lokuðu íláti eða setjið í frysti.
All Bran morgunkorn

All-Bran morgunkornið er gott eitt og sér en það má líka nýta í alls kyns uppskriftir!

Hollt millimál
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun