Kartöfluréttur með krönsi



⌑ Samstarf ⌑
heitur kartöfluréttur

Hér kemur heitur kartöfluréttur með skinku og kartöfluflögutoppi sem fullkomnar hann og gefur gott kröns!

Mmmm…..

ofnbakaðar kartöflur

Kartöfluréttur með krönsi

Fyrir 4-5 manns

Kartöfluréttur uppskrift

  • 1,2 kg bökunarkartöflur
  • 70 g smjör
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 dós „cream of chicken súpa“ 400 g
  • 100 g sýrður rjómi
  • 3 msk. Heinz majónes
  • 300 ml rjómi
  • 400 g skinka
  • 130 g cheddar ostur rifinn
  • Salt og pipar
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Flysjið kartöflurnar og skerið í litla teninga (c.a 1×1 cm), setjið í smurt eldfast mót.
  3. Saxið laukinn og steikið við meðalhita upp úr smjörinu, bætið hvítlauknum við í lokin og hellið síðan súpunni, sýrðum rjóma, majónesi og rjóma saman við, blandið vel og kryddið eftir smekk.
  4. Að lokum má skera skinkuna í litla bita og blanda saman við, hella síðan öllu saman yfir kartöflurnar ásamt cheddar ostinum og blanda öllu vel saman.
  5. Bakið í ofninum í um 50 mínútur eða þar til kartöflurnar eru nánast tilbúnar.
  6. Setjið þá kröns toppinn (sjá hér að neðan) yfir og aftur inn í ofn í um 10 mínútur.

Kröns toppur

  • 50 g brætt smjör
  • 100 g Maarud Creamy onion snakk
  • 30 g rifinn parmesanostur
  1. Blandið öllu saman í skál rétt áður en setja á yfir kartöfluréttinn og bakið í um 10 mínútur.
kartöflugratín

Þessar nýju Maarud flögur eru svo góðar!

heitur réttur í ofni

Corona 0% er síðan mesti snilldar bjórinn! Þú getur sannarlega verið með í stemmingunni án áfengis!

bakaðar kartöflur og bjór

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun