Súkkulaði hafra- og chiabúðingur



⌑ Samstarf ⌑
morgunverður hugmyndir

Um daginn setti ég inn hugmyndabox til að vita hvað þið vilduð fá að sjá hér á síðunni á næstunni. Eitt af því var hollt millimál og þessi grautur getur sannarlega verið millimál, morgunverður eða hádegisverður! Ég nota svona grauta mikið sem millimál og oftast síðdegis til þess að vera ekki orðin allt of svöng á meðan verið er að útbúa kvöldmatinn.

Það er endalaust hægt að leika sér með haframjöl og chiafræ og mikilvægt að gera ekki alltaf sama grautinn heldur hafa fjölbreytni!

millimál hugmyndir

Súkkulaði hafra- og chiabúðingur

Uppskrift dugar í 4-5 skálar/krukkur

Hafra- og chia búðingur

  • 200 g fínt haframjöl
  • 40 g chiafræ
  • 2 msk. Síríus kakóduft
  • 3 msk. agave sýróp
  • 200 g grísk jógúrt með vanillubragði
  • 600 ml möndlumjólk
  1. Setjið allt saman í skál, hrærið saman og kælið í að minnsta kosti 2 klukkustundir eða yfir nótt.
  2. Skammtið ykkur síðan jafnóðum og toppið með neðangreindu.

Toppur

  • Grísk jógúrt með vanillubragði
  • Jarðarber
  • Valor súkkulaði með möndlum – saxað
hádegisverður hugmyndir

Þetta súkkulaði sem er með engum viðbættum sykri er svoooooo gott!

hollt millimál

Ég geri oft skál með köldum graut í upphafi hverrar viku og hann geymist vel í allt að viku í vel lokuðu íláti í ísskápnum! Það er líka um að gera að prófa aðrar tegundir af mjólk og jógúrti ef þið viljið prófa ykkur áfram.

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun