Ég elska að ná að gera kvöldmat tilbúinn á hálftíma. Það voru margir sem óskuðu eftir einföldum og fljótlegum uppskriftum fyrir kvöldverð um daginn hjá mér á Instagram og ég er að gera mitt besta til að svara því kalli. Ég mun því halda áfram að koma með fljótlegar uppskriftir hingað inn!
Mmmmm…..

Steikt perlubygg með grænmeti og kjúkling
Fyrir um 4 manns
- 3 x ½ Sous Vide kjúklingur frá Ali
- 420 g perlubygg
- 1 laukur
- 1 rauð paprika
- 1 kúrbítur
- 2 msk. soyasósa
- Ólífuolía
- Salt, pipar, hvítlauksduft, paprikuduft
- 1 krukka fetaostur
- Byrjið á því að hita kjúklinginn í pokanum í heitu vatni í um 15 mínútur í vaskinum.
- Hitið ofninn í 180°C.
- Skerið niður allt grænmeti og sjóðið byggið (með 1 msk. af salti í 1,25 l af vatni).
- Færið kjúklinginn úr pokunum og yfir á ofnskúffu, setjið í ofninn í 20 mínútur á meðan þið steikið grænmetið.
- Kryddið grænmetið eftir smekk og setjið vel af ólífuolíu. Hrærið síðan soðnu byggi saman við og bætið soyasósunni saman við og kryddið meira ef ykkur finnst þess þurfa.
- Þegar kjúklingurinn er tilbúinn má setja fetaost yfir byggið og grænmetið (hella mestu olíunni af fyrst) og njóta saman.

Sous Vide kjúklingurinn frá Ali er svo djúsí og góður að mér persónulega finnst ekki einu sinni þurfa sósu með þessum rétti en það mætti alveg bera kalda sósu fram með honum fyrir þá sem þurfa.

Fetaosturinn gerir steikta byggið extra djúsí og gott!



































