Hráfæðismolar eru svo góðir og ég skil ekki af hverju ég geri þá ekki oftar til að eiga í frystinum. Þetta eru fullkomnir bitar til að grípa til í stað þess að fá sér sælgæti eða sykur!
Nammi sem er fullt af næringu!

Pistasíumolar
Uppskrift gefur 30-40 mola
Botn
- 270 g ferskar döðlur
- 50 g Til hamingju pekanhnetur
- 50 g Til hamingju möndlur
- 50 g Til hamingju pistasíur
- 3 msk. Til hamingju hnetusmjör
- 2 msk. Til hamingju kókosmjöl
- 3 msk. bökunarkakó
- ½ tsk. salt
- 2 msk. vatn
- 2 tsk. vanilludropar
- Setjið allt í blandara/matvinnsluvél og vinnið saman þar til hægt er að móta kúlur úr blöndunni.
- Mótið litlar kúlur og þjappið niður í sílíkon konfektmót. Einnig má fletja út á bökunarpappír sé þess óskað og skera síðan niður í bita þegar búið er að setja toppinn á.
- Setjið súkkulaðitopp yfir og skreytið, setjið í frysti í um 30 mínútur og takið molana þá upp úr sílíkonforminu (skerið í bita).
- Geymist í kæli í nokkra daga eða frysti í nokkrar vikur.
Súkkulaðitoppur
- 4 msk. kókosolía (brædd)
- 60 g bökunarkakó
- 3 msk. hlynsýróp
- 30 g Til hamingju pekanhnetur (saxaðar)
- 3 msk. Til hamingju kókosmjöl
- Hrærið olíu, kakó og sýróp saman með gaffli og setjið síðan smá hjúp yfir hvern konfektmola (smyrjið yfir blönduna).
- Toppið með söxuðum pekanhnetum og kókosmjöli.

Mmmm….mæli sannarlega með því að þið prófið!



































