Við elskum klúbbsamlokur og eru þær oftar en ekki pantaðar af minni fjölskyldu á veitingastöðum, hérlendis sem erlendis, tíhí! Á hótelinu okkar í Mexíkó í fyrra voru unglingarnir að vinna með „Club Sandwich“ í „Room Service“ nánast daglega án þess að fá leið á henni sem er mér óskiljanlegt, hahaha!
Einfalt og gott!

„Club Sandwich“
Uppskrift dugar í 4 samlokur
- 12 hvítar brauðsneiðar
- 400 g kalkúnaálegg
- 400 g silkiskorin skinka
- 4 cheddar ostsneiðar
- 4 gouda ostsneiðar
- 12 sneiðar beikon
- Kál
- 2 tómatar
- 2 avókadó
- 300 g Heinz majónes
- 2 msk. Heinz mild sinnep
- Salt og pipar
- Franskar/snakk til að bera fram með
- Hitið franskar og beikon í ofninum við 190°C á meðan þið undirbúið annað.
- Hrærið saman majónesi og sinnepi, kryddið með salti og pipar eftir smekk.
- Skerið niður grænmetið og takið til annað álegg.
- Ristið brauðsneiðarnar (ekki of mikið samt).
- Raðið samlokunni saman…brauðsneið, sósa, kál, skinka, ostur, tómatar, beikon, brauðsneið, sósa, avókadó, skinka, ostur, brauðsneið.
- Skerið síðan til helminga og njótið með frönskum/snakki.

Hér er útfærsla með sinnepssósu og avókadó sem gerir hana að mínu mati meira djúsí en annars því oft vilja klúbbsamlokur verða aðeins þurrar en með mjúku avókadó og góðri sinnepssósu er þessi samloka klárlega málið! Síðan er líka lykilatriði að spara ekki áleggið!

Skál!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































