Jarðarberja chiagrautur



jarðarberja chiagrautur

Ég rakst á svipaða hugmynd á netinu og eftir að ég prófaði að gera súkkulaði chiabúðing um daginn varð ég að prófa að gera jarðarberja líka. Það er hægt að leika sér með bragðtegundir og þessi var virkilega fersk og góð!

chiagrautur

Þið getið einnig prófað að setja aðra ávexti en þessi grautur var ekki lengi að hverfa á þessu heimili.

jarðarberja chia

Jarðarberja chiagrautur

Fyrir um 4 manns

  • 200 g jarðarber
  • 1 banani
  • 30 g haframjöl
  • 1 msk. kókosmjöl
  • 1 msk. hlynsíróp
  • 350 ml léttmjólk frá MS
  • 50 g chiafræ
  1. Setjið allt nema chiafræ í blandarann og blandið vel saman.
  2. Hellið í skál, hrærið chiafræjunum saman og og geymið í ísskáp í að minnsta kosti 3 klukkustundir (eða yfir nótt).
  3. Setjið grautinn síðan í skálar og toppið með því sem hugurinn girnist. Hér notaði ég gríska jógúrt, jarðarber og smá saxað dökkt súkkulaði.
chiagrautur uppskrift

Mmm…

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun