Jarðarberja ostakaka



⌑ Samstarf ⌑
Jarðarberja ostakaka

Ég elska ostakökur og þessi jarðarberja ostakaka er undursamleg! Súkkulaðihjúpuð jarðarberin á toppnum eru auðvitað punkturinn yfir I-ið og vakti þessi mikla lukku þegar ég tók hana með í afmælisboð í gær!

Ég sá hugmyndina af þessari köku á síðu Sprinkle Bakes en gerði mína útfærslu af kökunni sjálfri þó ég hafi skreytt hana nánast eins.

ostakaka uppskrift

Jarðarberja ostakaka

Botn

  • 1 pk Oreo kex (16 kökur)
  • 70 g smjör (brætt)
  1. Setjið kexið í blandara/matvinnsluvél þar til áferðin minnir á sand.
  2. Blandið smjörinu saman við og takið til 20 cm smelluform.
  3. Setjið bökunarpappír í botninn og spreyið formið að innan með matarolíu spreyi.
  4. Hellið kexblöndunni í botninn og þjappið niður og aðeins upp kantana.
  5. Kælið á meðan þið útbúið fyllinguna.

Fylling

  • 4 gelatínblöð + 50 ml vatn
  • 500 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
  • 150 g sykur
  • 100 g flórsykur
  • 2 tsk. vanillusykur
  • 200 g Driscolls jarðarber (maukuð)
  • 250 ml þeyttur rjómi
  1. Leggið gelatínblöðin í bleyti í kalt vatn í nokkrar mínútur þar til þau mýkjast.
  2. Sjóðið þá 50 ml af vatni og vindið þau saman við þegar suðan er komin upp, hrærið þar til þau eru öll uppleyst og takið af hellunni. Leyfið að ná stofuhita á meðan annað er undirbúið.
  3. Þeytið saman rjómaost, sykur, flórsykur og vanillusykur.
  4. Blandið maukuðum jarðarberjum saman við og því næst gelatínblöndunni í mjórri bunu og hrærið hægt saman á meðan.
  5. Að lokum má vefja þeytta rjómanum saman við með sleikju og síðan hella fyllingunni ofan á kexbotninn og slétta úr.
  6. Kælið í að minnsta kosti 3 klst eða yfir nótt áður en þið skreytið með jarðarberjum.

Skreyting

  • 400 g Driscolls jarðarber
  • 80 g dökkt súkkulaði
  1. Skerið neðan af jarðarberjunum svo þau fái sléttan botn.
  2. Raðið yfir alla kökuna svo þau þeki hana vel.
  3. Bræðið súkkulaðið og setjið yfir jarðarberin.
  4. Geymið kökuna í kæli fram að notkun.
jarðarberjakaka uppskrift

Súkkulaðihjúpuð jarðarber eru eitt það allra besta!

hugmyndir fyrir valentínusardaginn

Rósavín og jarðarberja ostakaka eru fullkomin tvenna!

súkkulaðihjúpuð jarðarber

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun