Nóakropps bomba



⌑ Samstarf ⌑
marengs uppskrift

Það er fátt betra en góðar hnallþórur! Mig langaði til þess að prófa að skipta Rice Krispies út fyrir Nóakropp í slíkum botni og úr varð þessi undursamlega bomba fyrir ykkur að njóta.

Namm!

kaka með Nóakroppi

Nóakropps bomba uppskrift

Nóakroppsbotn

  • 40 g smjör
  • 170 g sýróp
  • 200 g Síríus suðusúkkulaði
  • 400 g Nóakropp
  1. Setjið bökunarpappír í botninn á um 20 cm smelluformi og spreyið það að innan með matarolíuspreyi.
  2. Bræðið saman smjör, sýróp og suðusúkkulaði.
  3. Hrærið þá Nóakroppi saman við og blandið saman, hellið í smelluformið og sléttið aðeins úr.
  4. Kælið á meðan þið útbúið karamellu og undirbúið fyllinguna.

Marengs uppskrift

  • 3 eggjahvítur
  • 130 g púðursykur
  • 1 tsk. Cream of tartar
  1. Hitið ofninn í 120°C.
  2. Teiknið hring með smelluforminu fyrir Nóakroppsbotninn á smjörpappír og leggið á bökunarplötu.
  3. Þeytið eggjahvítur örskamma stund þar til þær byrja að freyða aðeins.
  4. Bætið púðursykri saman við í nokkrum skömmtum og þeytið vel á milli. Þeytið þar til marengsinn er stífþeyttur og bætið Cream of tartar við í lokin og þeytið stutt til viðbótar.
  5. Búið til nokkurs konar marengsskál inn í teiknaða hringinn en hafið marengsinn um 2 cm frá kantinum á hringnum því hann mun aðeins stækka við baksturinn.
  6. Bakið í 90 mínútur og leyfið að kólna með ofninum.

Karamella

  • 100 g Nóa rjómakúlur
  • 50 ml rjómi
  1. Bræðið saman í potti þar til slétt karamella hefur myndast.
  2. Leyfið karamellunni að ná stofuhita áður en þið notið hana á kökuna.

Fylling og samsetning

  • 500 ml rjómi
  • Nóakropp
  • Jarðarber, hindber, brómber
  1. Þeytið rjómann.
  2. Leggið Nóakroppsbotninn á kökudisk og setjið um helming rjómans yfir hann.
  3. Setjið næst marengsbotninn yfir rjómann og setjið restina af rjómanum yfir marengsbotninn.
  4. Setjið síðan karamelluna yfir rjómann og toppið með berjum og Nóakroppi.
góð marengsterta

Nóakropp gerir lífið einfaldlega betra!

hnallþóra uppskrift
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun