Ofnbakaður lax með hrísgrjónum



⌑ Samstarf ⌑
góður fiskréttur uppskrift

Höldum áfram með fljótlega og góða heimilisrétti! Þessi hérna réttur er svo góður og mesta snilldin er að það er hægt að skella honum saman á um kortéri og síðan ganga frá öllu og leggja á borð á meðan hann mallar í ofninum í tuttugu mínútur.

Hollt, gott og fljótlegt!

ofnbakaður lax

Ofnbakaður lax með hrísgrjónum

Fyrir 4-6 manns

  • 250 g Tilda basmati hrísgrjón
  • 900 g laxaflök
  • 1 rauð paprika
  • ½ blaðlaukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 200 g Philadelphia rjómaostur með sweet chilli
  • 550 ml rjómi
  • Rifinn ostur
  • Salt, pipar og hvítlauksduft
  • Ólífuolía til steikingar
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakka á meðan þið undirbúið annað.
  3. Skerið laxinn í bita og skerið einnig niður papriku og blaðlauk.
  4. Steikið papriku og blaðlauk upp úr ólífuolíu og kryddið eftir smekk.
  5. Bætið hvítlauknum á pönnuna þegar paprika og blaðlaukur er búið að mýkjast og hitið saman í um mínútu.
  6. Bætið þá rjóma og rjómaosti saman við og hrærið þar til rjómaosturinn er bráðinn.
  7. Setjið síðan hrísgrjónin í botninn á eldföstu móti, næst laxabitana og hellið síðan rjómaostasósunni jafnt yfir allt.
  8. Toppið með vel af rifnum osti og bakið í ofninum í 20 mínútur.
ofnbakaður fiskur

Philadelphia rjómaosturinn með sweet chilli gefur réttinum einstaklega gott bragð!

fiskur í ofni

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun