Fermingarveisla hugmyndir



⌑ Samstarf ⌑
fermingarveisla hugmyndir

Það styttist í fermingarnar og eflaust margir að skipuleggja slíkar veislur þessa dagana! Ég hef sett inn ótal veisluhugmyndir hér á síðuna og held því að sjálfsögðu áfram þar sem ég er mikil veislukona og elska að halda veislur! Það eru hins vegar aðrir sem fá í magann þegar veislu skal halda og þeim fallast hreinlega hendur í undirbúningi. Hér hef ég því sett saman hugmyndir sem þarfnast lítillar fyrirhafnar! Hér er búið að raða saman fallegum borðbúnaði með aðkeyptum veitingum svo nú er engin afsökun til að setja saman gómsæta veislu án þess að gera nokkuð annað en að raða fallega á borð!

Allur borðbúnaður kemur frá Húsgagnahöllinni en þar er endalaust til af fallegum bökkum, brettum og öllu því sem þarf til að bera veitingar fallega fram. Veitingarnar sjálfar eru síðan frá Veisluréttum Hagkaup og kökur og sætir bitar komu frá 17 Sortum. Hagkaup býður upp á úrval veislurétta og hér er aðeins brot af því sem er þar í boði svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Auður og Sylvía hjá 17 Sortum eru síðan mestu og bestu snillingarnir þegar það kemur að kökugerð og sætum bitum. Þetta var allt svo gott og verður klárlega í boði aftur síðar í veislum á mínu heimili!

veitingar fyrir fermingarveislu

Light&Living Mokuna kökudiskar eru til í mörgum stærðum, eru léttir og fallegir undir kökur eða smárétti!

smáréttir í veisluna

Þessi taco voru síðan eitthvað annað góð! Nauta var mitt uppáhald!

fermingarveisla veitingar

Kjúklingaspjótin tóku sig vel út á Broste Limfjord skurðarbrettinu!

veisluþjónusta

Þessa Nordal Kepel skál hef ég átt lengi og nota hana nánast í öllum veislum og matarboðum. Þess á milli prýðir hún eyjuna á heimilinu. Risarækjurnar tóku sig vel út á henni og voru dásamlega góðar.

matur í fermingu

Þessir kökudiskar frá Light&Living eru komnir á óskalistann minn, þeir eru til á 2 og 3 hæðum og eru æðislegir! Hvort sem það eru hamborgarar eða aðrar veitingar, þá verður allt fallegra á svona fínum diski!

ferming matur

Sætu bitarnir fóru á þennan 3ja hæða og ég elska að raða þeim upp á þennan hátt! Kökudiskurinn tekur sig síðan vel út á eyjunni/í eldhúsinu undir krydd, olíur eða annað fallegt.

fermingarveisla hugmyndir

Riverdale Lue kertastjakarnir koma í þremur hæðum og passa vel á veisluborðið!

fermingarterta

Þessi kaka! Almáttugur hvað hún er falleg! Auður og Sylvía hjá 17 Sortum geta galdrað fram óskir fólks í kökugerð! Síðan eru sætu bitarnir frá þeim alveg guðdómlegir. Hægt er að panta blandaða bakka en síðan eru ýmsir bitar til hjá þeim í frystinum í Hagkaup og þar getur maður valið saman það sem hentar hverju sinni!

ferming skreytingar

Mér finnst mikilvægt að hafa fersk blóm hér og þar og setti slík bæði í þennan fallega Jakobsdals vasa og í aðra minni kertastjaka.

fermingarveisla

Vefjurnar slóu í gegn á Broste Olina skurðarbrettinu. Þessi bretti hafa mjúkar línur og eru einstaklega falleg.

fermingarveisla

Ég vona að þessi framsetning og hugmyndir aðstoði ykkur í veisluundirbúningi! Blómin keypti ég í Garðheimum og blöðrurnar í Partýbúðinni. Ég veit að eflaust fleiri en ég hafa verið í vandræðum með að finna hringdúka svo ég má til með að segja ykkur að þessi fegurð ásamt fleiri litum eru væntanlegir í Húsgagnahöllina!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun