Brauðtertur eru klassík sem alltaf slá í gegn! Þessi er einföld en um leið guðdómlega ljúffeng. Ég útbjó eggjasalat með beikoni sem Lukka vinkona kom mér upp á lagið með fyrir nokkrum árum og smjörsteikti brauðtertubrauðið. Þegar það kemur að skreytingu má síðan leyfa hugmyndarfluginu að ráða og ekkert heilagt í þeim efnum!
Mmmmm……

Brauðterta með beikoni
Brauðterta fylling
- 350 g beikon
- 11 egg (harðsoðin)
- 300 g Heinz majónes
- 1 lítill rauðlaukur
- Aromat
- 200 g smjör (brætt)
- 5 sneiðar brauðtertubrauð (ílangt)
- Hitið ofninn í 220°C.
- Eldið beikonið í ofni þar til það er stökkt, þurrkið á pappír og saxið smátt niður, geymið um 3 sneiðar til að skreyta með. Útbúið salatið á meðan.
- Saxið rauðlaukinn smátt og blandið eggjum og beikoni saman við saxaðan laukinn.
- Hrærið næst majónesinu saman við og smakkið til með Aromat kryddi.
- Skerið skorpuna af brauðtertusneiðunum og setjið á ofnplötu með bökunarpappír.
- Penslið með bræddu smjöri á báðum hliðum og setjið í 220°C heitan ofninn í um 4 mínútur á hvorri hlið, kælið áður en þið setjið saman.
- Skiptið salatinu í 4 hluta og staflið upp brauðtertubrauðsneiðum með salati á milli og skreytið (sjá að neðan).
Brauðterta skreyting
- Um 150 g Heinz majónes
- Baunasprettur (um 50 g)
- 2 harðsoðin egg
- 3 stökkar beikonsneiðar
- Steinseljulauf
- Blæjuber
- Sítrónusneiðar

Majónes er lykilhráefni þegar kemur að brauðtertugerð!

Namm!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































