Heitur brauðréttur í kvöldmatinn er afar góð hugmynd! Þessi réttur er nefnilega fullkominn hvort sem það er í veisluna eða sem máltíð fyrir fjölskylduna. Ungir sem aldnir borðuðu hér vel og mæli ég með að þið prófið!
Mmmm….

Heitur brauðréttur með kjúklingi
- 8-10 fransbrauðssneiðar
- 1 eldaður kjúklingur (rifinn niður)
- 200 g sveppir
- 200 g brokkoli
- 600 ml rjómi
- 100 g Heinz majónes
- 1 x piparostur
- Rifinn ostur
- Smjör og ólífuolía til steikingar
- Salt, pipar og hvítlauksduft
- Skerið skorpuna af brauðsneiðunum og geymið.
- Skerið sveppi og brokkoli niður og steikið við meðalháan hita upp úr smjöri og ólífuolíu í bland, kryddið eftir smekk.
- Þegar grænmetið fer að mýkjast má bæta rjóma, majónesi og piparosti saman við og hræra þar til bráðið.
- Að lokum fer rifinn kjúklingurinn saman við og þá er hægt að raða réttinum saman í fatið.
- Smyrjið eldfast mót að innan með smjöri, hyljið botninn með brauðsneiðum, setjið ½ af kjúklingablöndunni yfir brauðið, síðan aftur lag af brauðsneiðum og restina af kjúklingablöndunni.
- Að lokum má setja vel af rifnum osti yfir allt saman og baka við 180° C í um 25 mínútur.

Majónes gerir einfaldlega gott betra!

Skál!
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































