Dubai Chocolate eftirréttur



⌑ Samstarf ⌑
Dubai Chocolate dessert

Líklega einn einfaldasti og heitasti eftirréttur sögunnar kominn hingað á bloggið fyrir ykkur! Dætur mínar eru búnar að vera mjög uppteknar af því að búa til Dubai Chocolate undanfarnar vikur og það æði hefur líklega ekki farið framhjá nokkrum manni! Mér finnst súkkulaðið sjálft hins vegar vera þannig að ég get aðeins borðað smá bita og þá er komið nóg. Hins vegar með því að setja jarðarber í aðalhlutverk með pistasíublöndunni og bræddu mjólkursúkkulaði erum við að tala um „next level“ gott dæmi sko!

Mmmm….

Dubai Chocolate uppskrift

Dubai Chocolate eftirréttur uppskrift

Uppskrift dugar í um 6 glös

  • 250 g Síríus mjólkursúkkulaði
  • 4 msk. ljós matarolía
  • 600 g jarðarber
  • 100 g Kataifi (ristað)
  • 250 g pistasíukrem
  • 40 g pistasíukjarnar (saxaðir)
  1. Bræðið súkkulaðið og hrærið síðan matarolíunni saman við (til að koma í veg fyrir að það storkni alveg).
  2. Skerið jarðarberin í bita og geymið.
  3. Hrærið saman kataifi og pistasíukremi.
  4. Raðið næst saman í fallegt glas/skál. Fyrst fer um 1 msk. brætt súkkulaði, síðan nokkur jarðarber og um 1 msk. af pistasíublöndu, endurtakið nema setjið smá auka súkkulaði yfir í lokin og saxaðar pistasíur.
  5. Geymið í kæli og njótið sem fyrst.
Dubai Chocolate dessert

Hvað er betra en jarðarber og brætt súkkulaði…jú, jarðarber, pistasíukröns og brætt súkkulaði!

Dubai Chocolate eftirréttur

Þetta snýst um að létta sér lífið með því að kaupa ristað kataifi og tilbúið pistasíukrem. Ég fékk kataifi í Istanbul Market á Grensásvegi og keypti pistasíukrem í Epal en fann það svo reyndar líka í Costco. Istanbul Market á það líka til en það var uppselt þegar ég ætlaði að kaupa það með kataifi-inu.

Dubai Chocolate dessert

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun