Marineruð Ribeye steik og sveppasósa



⌑ Samstarf ⌑
grilluð nautasteik

Síðustu helgi var hálfgert vor í lofti og mér fannst tilvalið að byrja á páskauppskriftunum mínum. Það er góð tilbreyting frá lambinu að grilla nautasteik og almáttugur þessi matur var svo góður að þið verðið að prófa!

Mmmm….

Ribeye steik

Marineruð Ribeye steik og sveppasósa

Fyrir 4

Ribeye steik eldun

  • 3-4 Ribeye steikur (eftir stærð)
  • Caj P original grillolía
  1. Þerrið steikurnar og penslið með Caj P olíu á báðum hliðum, leyfið að marinerast í að minnsta kosti klukkustund (yfir nótt er líka í lagi).
  2. Grillið á meðalheitu grilli þar til æskilegum kjarnhita er náð. Munið að kjarnhiti hækkar um nokkrar gráður á meðan steikurnar hvíla. Við tökum af grillinu með kjarnhita í kringum 51-54°C eftir því hversu vel við viljum þær eldaðar, síðan er mikilvægt þær fái að standa í að minnsta kosti 10 mínútur.

Sveppasósa uppskrift

  • 300 g blandaðir sveppir (kastaníu og venjulegir)
  • 3 msk. smjör
  • 1 msk. Filippo Berio ólífuolía
  • 3 hvítlauksgeirar
  • 150 ml vatn
  • 2 msk. Oscar nautakraftur (fljótandi)
  • 300 ml rjómi
  • 40 g rifinn Parmareggio Reggiano ostur
  • Maizena mjöl
  • Svetta af Muga Reserva rauðvíni
  • 1 msk. ferskt timian (saxað)
  • Salt og pipar
  1. Sneiðið sveppina niður og steikið upp úr smjöri og ólífuolíu þar til þeir mýkjast, kryddið með salti og pipar.
  2. Rífið nú hvítlaukinn saman við og steikið áfram stutta stund.
  3. Næst má bæta vatni, nautakrafti, rjóma og parmesan osti saman við og leyfa aðeins að malla, þykkið með maizenamjöli eftir smekk.
  4. Í lokin má setja smá rauðvín saman við ásamt söxuðu timian og krydda eftir smekk með salti og pipar.

Annað meðlæti

  • 2 sætar kartöflur
  • Ólífuolía
  • Salt og pipar
  1. Sneiðið kartöflurnar í þykkar sneiðar, penslið með ólífuolíu og kryddið með salti og pipar.
  2. Bakið við 200°C í um 40 mínútur eða þar til þær eru mjúkar í gegn.
  • 12-16 ferskir aspasstönglar
  • 2 msk. smjör
  • Salt og pipar
  • Rifinn Parmareggio Reggiano ostur eftir smekk
  1. Skerið trenaða hlutann af aspasnum og steikið við meðalhita upp úr smjöri þar til hann mýkist.
  2. Kryddið með salti og pipar og færið aspasinn síðan ofan á bökuðu sætu kartöfluna og toppið með vel af parmesan osti.
  • Ferskt salat að eigin vali
steik og rauðvín

Það er fátt betra en góð nautasteik og rauðvínsglas.

Grillað ribeye

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun