Það styttist í páskana svo ég ætla að byrja að lauma hingað inn uppskriftum í páskabúningi þó svo þessi undursamlega súkkulaðikaka eigi nú við allt árið um kring!
Það er fátt betra en nýbökuð súkkulaðikaka!

Súkkulaðikaka með súkkulaði smjörkremi
Súkkulaðikaka botnar uppskrift
- 240 g hveiti
- 80 g Síríus bökunarkakó
- 2 tsk. matarsódi
- 1 tsk. lyftiduft
- 290 g sykur
- 60 g púðursykur
- 1 tsk. salt
- 240 g súrmjólk
- 110 g ljós matarolía
- 3 egg
- 2 tsk. vanilludropar
- 240 g sjóðandi vatn
- Hitið ofninn í 160°C.
- Setjið bökunarpappír í botninn á 3 x 15 cm smelluformum og spreyið að innan með matarolíuspreyi.
- Sigtið hveiti, bökunarkakó, matarsóda og lyftiduft saman í hrærivélarskálina og blandið síðan báðum tegundum af sykri og salti saman við.
- Blandið súrmjólk, matarolíu, eggjum og vanilludropum saman í aðra skál og pískið saman.
- Hrærið þurrefnunum saman á lægstu stillingu með K-inu í hrærivélinni og hellið súrmjólkurblöndunni varlega saman við á meðan.
- Næst má hella heitu vatninu í mjórri bunu útí, blanda vel og skafa niður á milli.
- Skiptið þá í formin þrjú, það fara um 450g í hvert form.
- Bakið í 20-25 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsu á en ekki blautu deigi.
- Kælið stutta stund, takið næst úr formunum og færið yfir á kæligrind þar til botnarnir kólna alveg. Þá má skera aðeins ofan af þeim til að slétta þá.
Súkkulaði smjörkrem
- 200 g Síríus suðusúkkulaði
- 50 ml rjómi
- 340 g smjör (kalt smjör í teningum)
- 590 g flórsykur
- 3 tsk. vanilludropar
- ¼ tsk. salt
- Brjótið súkkulaðið niður og bræðið ásamt rjómanum (í örbylgjuofni eða potti), hrærið reglulega í á meðan þar til það er bráðið. Geymið og leyfið að ná stofuhita á meðan annað er undirbúið.
- Þeytið smjörið í um 5 mínútur þar til það verður létt í sér, skafið reglulega niður á milli.
- Blandið súkkulaðiblöndunni næst saman við í nokkrum skömmtum, þeytið og skafið niður á milli.
- Næst má setja flórsykurinn í nokkrum skömmtum saman við og að lokum vanilludropa og salt. Gott er að sigta flórsykurinn fyrst.
- Hrærið allt saman í nokkrar mínútur þar til það er létt og ljóst, notið síðan sleikju til að vefja því saman og taka mesta loftið úr kreminu áður en þið smyrjið á kökuna.
Samsetning
- Smyrjið smá kremi á kökudisk og setjið fyrsta botninn þar ofan á.
- Smyrjið vænu lagi af kremi á milli og endurtakið þar til allir 3 botnarnir eru komnir.
- Smyrjið þá þunnu lagi af kremi utan um alla kökuna, skafið vel af fyrir „nakta köku“ en að sjálfsögðu má hafa þykkara lag af kremi sé þess óskað.
- Smyrjið einnig yfir toppinn og sléttið úr kreminu eins og hægt er og takið umfram krem af kantinum/toppinum.
- Kælið kökuna í um 15 mínútur og setjið síðan á hana ganaché og skreytið.
Ganaché og skreyting
- 100 g Síríus suðusúkkulaði
- 60 ml rjómi
- Síríus lítil páskaegg með mjólkursúkkulaði
- Síríus lítil páskaegg með dökku súkkulaði
- Fersk blóm að eigin vali
- Saxið suðusúkkulaðið smátt niður og setjið í skál.
- Hitið rjómann að suðu, hellið yfir súkkulaðið og pískið saman þar til slétt súkkulaðibráð hefur myndast.
- Hellið yfir kælda kökuna og látið aðeins leka fram af toppinum.
- Skreytið með súkkulaði páskaeggjum og ferskum blómum.

Það má sannarlega nota páskaegg í kökuskreytingar!



































