Gulrótarkaka uppskrift



⌑ Samstarf ⌑
Gulrótarkaka uppskrift

Gulrótarkaka er í uppáhaldi hjá flestum á mínu heimili og hér kemur djúsí og góð útfærsla af slíkri fyrir ykkur!

Mmmm….

Gulrótarkaka uppskrift

Gulrótarkaka uppskrift

Botnar

  • 250 g hveiti
  • 150 g púðursykur
  • 130 g sykur
  • 2 tsk. matarsódi
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. kanill
  • ½ tsk. salt
  • ¼ tsk. negull
  • 4 egg
  • 160 g ljós matarolía
  • 90 g súrmjólk
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 300 g gulrætur (fínt rifnar)
  1. Hitið ofninn í 170°C og spreyið 3 x 15 cm smelluform að innan með matarolíuspreyi (einnig gott að setja bökunarpappír í botninn fyrst en ekki nauðsynlegt).
  2. Hrærið saman öll þurrefnin í hrærivélarskálinni og geymið.
  3. Pískið næst saman egg, olíu, súrmjólk og vanilludropa, blandið varlega saman við þurrefnin á lágum hraða.
  4. Skafið deigið aðeins niður á milli og bætið síðan rifnum gulrótum saman við.
  5. Skiptið deiginu næst niður í formin (um 410-420 g í hvert) og bakið í um 40 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi.
  6. Kælið botnana og skerið síðan aðeins ofan af þeim til að jafna þá fyrir samsetningu.

Krem og skreyting

  • 250 g smjör við stofuhita
  • 80 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 1 msk. rjómi
  • 680 g flórsykur
  • 1-2 pokar af litlum Cadbury súkkulaðieggjum
  1. Þeytið smjörið þar til það verður létt og ljóst.
  2. Bætið þá rjómaosti, vanilludropum og rjóma saman við og blandið saman.
  3. Bætið flórsykri saman við í nokkrum skömmtum og skafið og þeytið vel á milli.
  4. Smyrjið góðu 1 cm lagi af kremi á milli botnanna og þekið kökuna síðan að utan með þunnu lagi af kremi, nema um 1 cm á toppnum.
  5. Sprautið síðan litla toppa ofan á alla kökuna og setjið Cadbury egg á hvern topp. Gott er að nota stóran stjörnustút líkt og 1 M eða 2 D frá Wilton.
  6. Geymið kökuna í kæli.
páskakaka uppskrift

Cadbury eggin eru fullkomin til að skreyta páskakökur með!

páskakaka

Það má einnig baka þetta deig sem skúffuköku eða bollakökur en þá þarf bara að fylgjast vel með og aðlaga bökunartímann að slíku.

Gulrótarkaka uppskrift

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun