Léttur og vorlegur pastaréttur sem allir í fjölskyldunni munu elska! Ljúffengt sítrónusmjörið passar fullkomlega með bökuðum tómötum, humri og burrata, nammi namm!
Fljótlegt, ferskt og gott!

Sítrónu linguine með humri og burrata
Fyrir 4 manns
- 300 g piccolo tómatar
- 400 g linguine pasta
- 500 g skelflettur humar
- 1 sítróna (í þunnar sneiðar)
- 4 hvítlauksgeirar
- Smjör til steikingar
- Ólífuolía
- Salt og pipar
- Toppur:
Ferskt basilpestó
Ristaðar furuhnetur
Söxuð basilika
4 x litlar burrata kúlur frá Mjólkursamsölunni (við stofuhita)
- Hitið ofninn í 200°C.
- Setjið tómatana í eldfast mót, hellið um 2 msk. af ólífuolíu yfir, rífið 2 hvítlauksrif saman við, saltið og piprið. Bakið í ofninum í 20 mínútur á meðan þið undirbúið annað.
- Sjóðið linguine í söltu vatni.
- Smjörsteikið humarinn á meðan og rífið 2 hvítlauksrif yfir hann í lokin, saltið og piprið.
- Takið humarinn af pönnunni, bætið á hana smjöri (um 2 msk), ólífuolíu (um 2 msk) og sítrónusneiðum, leyfið að malla við meðalhita þar til sneiðarnar mýkjast upp.
- Bætið linguine saman við sítrónusmjörið og veltið upp úr því, fjarlægið síðan sítrónusneiðarnar sjálfar.
- Raðið síðan saman á disk; linguine, bakaðir tómatar, smjörsteiktur humar, pestó, furuhnetur, basilika og síðast en ekki síst burratakúla.
- Njótið sem fyrst með góðu hvítlauksbrauði.

Burrata ostur gerir einfaldlega allt betra og þessar litlu kúlur eru þær krúttlegustu! Við vinkonurnar fengum einmitt svona á Sól veitingastað um daginn og þið vitið ekki hvað það gladdi mig að sjá þetta í verslunum!

Mmmmm….



































