Lambagúllas í brúnni sósu með kartöflumús



⌑ Samstarf ⌑
kartöflumús uppskrift

Það er mikilvægt að halda í gamlar hefðir og hef ég verið dugleg að deila slíkum uppskriftum með ykkur undanfarna mánuði í samstarfi við ORA. Hér kemur nú undurmjúkt lambagúllas og því get ég lofað að allir fjölskyldumeðlimir borðuðu vel!

Það er ekki hægt annað en elska svona uppskriftir!

lambagúllas uppskrift

Lambagúllas í brúnni sósu með kartöflumús

Fyrir um 5 manns

Lambagúllas uppskrift

  • 900 g lambagúllas
  • 1 laukur
  • 2-3 gulrætur
  • 100 g smjör
  • 700 ml vatn
  • 500 ml rjómi
  • 2-3 msk. fljótandi nautakraftur
  • 1-2 lárviðarlauf
  • Salt, pipar, paprikuduft
  • Sósulitur
  • Maizenamjöl
  • ORA grænar baunir (meðlæti)
  • Rabarbarasulta (meðlæti)
  1. Skerið lauk og gulrætur í þunnar sneiðar og steikið upp úr smjöri, kryddið eftir smekk.
  2. Þegar grænmetið er búið að mýkjast má færa það yfir á disk, bæta smjöri á pönnuna og brúna kjötið á öllum hliðum, krydda eftir smekk.
  3. Þá má bæta grænmetinu aftur í pottinn ásamt vatni, rjóma og nautakrafti.
  4. Kryddið eftir smekk, þykkið með maizenamjöli og litið með sósulit. Bætið lárviðarlaufunum síðan saman við og leyfið að malla í að minnsta kosti klukkustund við vægan hita.
  5. Sjóðið á meðan kartöflur og útbúið kartöflumús.
  6. Njótið síðan með ORA grænum baunum og rabarbarasultu.

Kartöflumús uppskrift

  • 1100 g bökunarkartöflur
  • 200 ml nýmjólk
  • 50 g smjör
  • 2 msk. sykur
  • 1 tsk. salt
  1. Flysjið kartöflurnar, skerið í minni bita og sjóðið þar til þær eru mjúkar.
  2. Hellið vatninu af, færið þær yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægstu stillingu.
  3. Bætið smjöri, sykri og salti saman við og síðan mjólk.
lambagúllas í brúnni sósu

Þessi dós kláraðist fljótt svo ég mæli með tveimur eða einni risastórri!

ömmumatur
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun