Ofur einfalt, hollt og gott hljómar vel ekki satt! Við elskum að hafa fjölbreytni þegar kemur að hollustunni á þessu heimili og acai skálar eru frábær lausn og mæli ég með að þið prófið!
Mmm….

Acai skál uppskrift
- ½ dós af Sambazon frosinni Açaí blöndu
- Granóla
- Chia fræ
- ½ banani
- Brómber
- Bláber
- Kókosflögur
- Hnetusmjör
- Leyfið acai dósinni að standa við stofuhita í um 10 mínútur áður en þið útbúið skálina.
- Smyrjið þá um 2 cm þykku lagi í botninn á skál og toppið með granóla, chia fræjum, bananasneiðum, berjum, kókosflögum og hnetusmjöri.

Það er frábært að geta keypt blönduna tilbúna svona frosna, þá verður þetta leikur einn!

Hollt, gott og fljótlegt, namm!



































