Það er alls ekki flókið að útbúa „Egg Benedict“ og hér koma hugmyndir fyrir ljúffengan bröns eða dögurð á góðri íslensku. Allt hráefni er keypt í Hagkaup og ég elska hvað það er til mikið tilbúið gúrm þar! Það auðveldar samsetningu og sparar tíma í undirbúningi án þess að það komi niður á gæðunum. Hér er til dæmis allt keypt tilbúið og raðað á borð nema ég útbjó „Egg Benedict“ frá grunni.
Mmmm…..einfalt og gott!

Mæli með að þið prófið yfir páskana eða hvenær sem ykkur langar í ljúffengan bröns.

Egg Benedict uppskrift
6 stk
- 3 x Manhattan English Muffins
- Beikonskinka og/eða reyktur lax
- Hleypt egg (sjá aðferð að neðan)
- Hollandise sósa (sjá uppskrift að neðan)
- Pipar
- Smjör til steikingar
- Skerið English Muffins í sundur svo þið fáið 6 helminga.
- Steikið upp úr smjöri við meðalháan hita og leggið á disk.
- Setjið næst beikonskinku/eða reyktan lax, hleypt egg og toppið með vel af hollandaise sósu og smá pipar.
Hleypt egg aðferð
- 6 egg
- 1 l vatn
- 1 msk. edik
- Hitið vatnið að suðu og bætið ediki saman við.
- Brjótið eggin í bolla, eitt í einu.
- Snúið skeið í hringi í pottinum til að mynda hringsog í miðjunni og hellið egginu varlega í miðjuna og leyfið því að vera í pottinum í 2 ½ – 3 ½ mínútu eftir því hversu blauta þið viljið hafa rauðuna.
- Veiðið eggið þá upp úr með spaða/gatasigti og leggið ofan á skinkuna/laxinn (einnig má safna eggjunum saman á eldhúspappír og setja síðan ofan á brauðið).
Hollandaise sósa uppskrift
- 3 eggjarauður
- 1 msk. vatn
- ½ sítróna (safinn)
- 180 g smjör (brætt)
- Salt, cheyenne pipar
- Setjið eggjarauður, vatn og sítrónusafa í þrönga könnu/ílát sem töfrasproti kemst ofan í.
- Bræðið smjörið og hellið yfir í mælikönnu.
- Þeytið eggjarauðublönduna stutta stund og á meðan töfrasprotinn er enn í gangi megið þið bæta brædda smjörinu saman við í mjórri bunu og þeyta allan tímann.
- Þeytið þar til sósan hefur þykknað og njótið sem fyrst. Ef sósan verður of þykk má þynna hana með því að setja 1 msk. af volgu vatni saman við í einu og þeyta saman.
Annað gott hráefni fyrir brönsinn
- Súrdeigsbrauð með jalapeno frá Hagkaup
- Tilbúin brauðsalöt frá Hagkaup
- Tilbúnir niðurskornir ávextir (ananas og vatnsmelóna)
- Steikt beikon
- Jarðarber, brómber eða önnur ber/ávextir sem hugurinn girnist
- Tilbúnar frosnar pönnukökur með sýrópi og berjum
- Kleinuhringir með súkkulaði (fást frosnir í Hagkaup)
- Lítil súkkulaðiegg

Hægt er að kaupa niðurskorna ávexti eins og vatnsmelónu og ananas í Hagkaup og það er algjör snilld í brönsinn!

Þar er einnig úrval af ljúffengum salötum og jalapeno súrdeigsbrauðið maður minn, það er eitthvað annað gott!

Allt hráefni í þessa uppskrift fæst í Hagkaup!


































