Sumarið er á næsta leiti og grilltíminn að hefjast. Við grillum svosem úti allt árið um kring en klárlega meira þegar veðrið er betra! Hér kemur útfærsla af hamborgara með snakki á milli og þessi hér var algjör negla! Þetta snakk er reyndar ávanabindandi en það er önnur saga, hahaha!
BBQ borgarar með jalapeno snakki
Magn fer eftir fjölda hamborgara en eftirfarandi hráefni þarf í borgarana:
- Hamborgarar + brauð
- Heinz Sweet chili bbq sósa
- Hamborgarakrydd
- Ostsneiðar
- Kál
- Tómatar
- Beikon
- Jalapeno
- Rauðlaukur
- Maarud snakk – intense green pepper
- Skerið niður grænmeti og hafið tilbúið áður en þið grillið borgarana.
- Grillið beikonið og geymið á efri grindinni á meðan hamborgararnir eru á grillinu.
- Grillið hamborgarana, kryddið, setjið ostinn á og hitið brauðið.
- Raðið öllu saman; Hamborgarabrauð, bbq sósa, kál, kjöt, tómatur, beikon, bbq sósa, jalapeno, rauðlaukur, snakk, bbq sósa, hamborgarabrauð.

Meðlætið okkar var síðan bara meira af snakki í stað þess að vera með franskar.

Þessi bbq sósa er mín uppáhalds og finn ég að ég vel hana aftur og aftur umfram aðrar!

Ískaldur Corona passar vel með þessum rétti.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































