Kjöt í karrí



⌑ Samstarf ⌑
kjöt í karrí

Amma Guðrún heitin eldaði ansi oft kjöt í karrí fyrir okkur systurnar og er þetta einn af mínum uppáhalds réttum. Það er síðan með svona mat að maður er einhvera hluta vegna ekki nógu duglegur að elda hann! Ég held að ástæðan sé að maður miklar þetta eitthvað fyrir sér en í rauninni er þetta mjög einföld eldamennska og allir í fjölskyldunni elska svona mat!

Ég hef reyndar alltaf skrifað karrý með Ý en ekki Í en svo sá ég það er með venjulegu Í á pakkanum svo ég ákvað að fylgja því þetta skiptið, hahaha!

Mmmm….

hvernig á að elda kjöt í karrí

Kjöt í karrí

Fyrir um 6 manns

Súpukjöt eldun

  • Um 2 kg súpukjöt
  • 1 msk. salt
  • ½ laukur
  1. Skolið kjötbitana vel og setjið í stóran pott.
  2. Hellið köldu vatni yfir og bætið salti og lauk saman við.
  3. Hitið að suðu og lækkið þá hitann og leyfið að malla í um 1,5 klst.
  4. Undirbúið annað á meðan (sjóðið kartöflur, hrísgrjón og útbúið sósuna).

Karrísósa uppskrift

  • ½ laukur
  • 50 g smjör
  • 700 ml lambasoð (úr pottinum)
  • 300 ml rjómi
  • 2 pk af TORO karrísósu
  • 1 tsk. soyasósa
  • Salt og pipar eftir smekk
  1. Saxið laukinn smátt og steikið upp úr smjöri þar til hann mýkist.
  2. Hellið kjötsoði úr pottinum með súpukjötinu í gegnum sigti yfir laukinn.
  3. Pískið næst TORO karrísósunum saman við og bætið síðan rjómanum saman við.
  4. Hrærið vel og kryddið síðan eftir smekk með soya, salti og pipar.

Annað meðlæti

  • Soðnar kartöflur
  • Soðin hrísgrjón
kjöt í karrý

Þegar ég geri karrísósu með þessu dufti þá klikkar hún aldrei! Mér finnst gott að steikja smá lauk upp úr smjöri og nota gott soð með duftinu, síðan má auðvitað bragðbæta með hvaða kryddi/krafti sem ykkur þykir gott. Rjóminn er síðan að mínu mati ómissandi fyrir hina fullkomnu karrísósu.

karrísósa og kjöt

Amma var alltaf bæði með kartöflur og hrísgrjón og elska ég að stappa kartöflurnar og borða bland af grjónum, kartöflum og vel af sósu, eitt og sér eða með kjöti líka, hahaha!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun