Sinneps- og sítrónugljáður lax



⌑ Samstarf ⌑
grillaður lax

Grillaður fiskur er eitt það allra besta og ég er alltaf að reyna að vera duglegri að elda fisk en það gengur stundum ekki nógu vel! Hér kemur hins vegar undursamlegur lax sem tekur enga stund að útbúa og almáttugur þessi hunangs-sinneps-sítrónu gljái var æðislegur!

Sinneps- og sítrónugljáður lax

Fyrir um 4 manns

Grillaður lax aðferð

  • 900 g laxaflök
  • 6 msk. Maille honey dijon mustard
  • 3 hvítlauksgeirar
  • 1 sítróna (börkur + safi)
  • 2 msk. púðursykur
  • 1 msk. steinselja (söxuð)
  1. Hitið grillið!
  2. Hrærið saman öll hráefni fyrir utan lax til að útbúa gljáann.
  3. Skiptið flökum/bitum niður í þykkan álpappír sem hægt er að klemma saman í nokkurs konar vasa (svo gljáinn leki ekki úr).
  4. Dreifið úr gljáanum yfir fiskinn og eldið á vel heitu grilli í um 10 mínútur (aðeins styttra ef flökin eru þunn/bitar litlir).

Meðlæti hugmyndir

  • Köld hvítlaukssósa
  • Ferskur aspas vafinn í beikon og grillaður
  • Kartöflur
  • Ferskt salat
  • Grillað grænmeti
hunangs sinnep á lax

Ég er að elska að hunangs-sinnepið frá Maille sé komið í svona flösku sem hægt er að sprauta úr!

grillaður lax
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun