Spaghetti með ricotta og spínati



⌑ Samstarf ⌑
pastaréttur uppskrift

Ferskur og sumarlegur pastaréttur! Ég rakst á svipaða útfærslu á netinu um daginn og gat ekki hægtt að hugsa um þetta fyrr en ég væri búin að prófa!

Mmmm….

ricotta pasta

Spaghetti með ricotta og spínati

Fyrir um 4 manns

  • 400 g DeCecco spaghetti
  • 250 g ricotta ostur
  • 1 sítróna (safi og börkur)
  • 100 g spínat
  • 3 hvítlauksgeirar
  • Filippo Berio virgin ólífuolía
  • Salt og pipar
  • Um 100 ml pastavatn
  • Parmesanostur
  1. Sjóðið spaghetti í söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum.
  2. Hrærið á meðan ricotta osti, sítrónusafa + berki saman í skál, kryddið eftir smekk.
  3. Rífið næst hvítlauksgeirana og steikið upp úr olíu, bætið þá spínatinu saman við og steikið þar til það mýkist, kryddið eftir smekk.
  4. Bætið ricottablöndunni á pönnuna ásamt spaghetti og blandið öllu saman ásamt pastavatni (magn eftir smekk).  
  5. Rífið vel af parmesanosti yfir og njótið með Muga hvítvíni.
sítrónupasta

Það tekur um 20 mínútur með öllu að undirbúa þennan rétt!

pasta og hvítvín

Pasta og hvítvín er fullkomin tvenna!

léttur pastaréttur

Svo gott!

spaghetti

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun