Pastasalat með kjúklingi, eggjum og beikoni



salat með kjúkling og pasta

Harpa Karin dóttir mín hefur útbúið þetta salat fyrir okkur fjölskylduna nokkrum sinnum. Núna síðast smellti ég af nokkrum myndum og bað hana að skrifa niður innihald til að leyfa ykkur að njóta! Það er ferskt og gott og beikonið gerir það extra djúsí.

pastasalat með kjúklingi og beikoni

Pastasalat með kjúklingi, eggjum og beikoni

Fyrir 4-6 manns

  • 250 g ostafyllt tortellini
  • 3 eldaðar kjúklingabringur
  • Um 350 g beikon
  • 4 harðsoðin egg
  • ½ iceberg haus
  • Vínber (1-2 lúkur)
  • Jarðarber (10 stk)
  • 1 x Avókadó
  • 1/3 Agúrka
  • Fetaostur (eftir smekk)
  • Brauðteningar (eftir smekk)
  • Parmesanostur yfir í lokin
  • Ranch dressing (keypt tilbúin)
  1. Sjóðið pasta og eldið kjúkling og beikon (best að hafa beikonið stökkt).
  2. Skerið eggin niður í bita ásamt öllu grænmeti.
  3. Hrærið saman í skál og toppið með fetaosti, brauðteningum, parmesan osti og dressingu.
pastasalat
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun