Blinis með reyktum laxi



⌑ Samstarf ⌑
Blinis með reyktum laxi

Blinis er fullkominn forréttur eða smáréttur á hlaðborði! Sums staðar er hægt að kaupa tilbúnar kökur en það er ekkert mál að útbúa þær líkt og hér er gert og finnst mér það að sjálfsögðu betra.

Mmmm….

blinis

Blinis með reyktum laxi

Um 30 stk

Blinis kökur uppskrift

  • 130 g hveiti
  • 200 g grísk jógúrt
  • 2 egg
  • 2 msk. mjólk
  • 1 msk. ólífuolía
  • 1 msk. sykur (má sleppa)
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. lyftiduft
  1. Hrærið öllu saman með písk þar til kekkjalaust.
  2. Steikið litlar „pönnukökur“ við meðalháan hita og kælið áður en þið toppið með rjómaosti og reyktum laxi.

Álegg á blinis

  • Um 150 g Philadelphia Original rjómaostur
  • Um 300 g reyktur lax (sneiddur)
  • Pipar
  • ½ sítróna (börkurinn)
  • Dill
  1. Smyrjið um ½ tsk. af rjómaosti á hverja köku og piprið.
  2. Rúllið lítilli sneið af reyktum laxi upp og setjið ofan á rjómaostinn.
  3. Rífið smá sítrónubörk yfir laxinn og toppið með dilli til skrauts.
Smáréttir

Rjómaostur ofan á og síðan lax, namm!

forréttur hugmynd

Blinis og hvítvín fer fullkomlega vel saman.

Blinis uppskrift

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun