Bakaðir brie ostar eru eitt það allra besta sem ég fæ! Það var orðið ansi langt síðan ég bakaði ost svo mér fannst tími til kominn að útbúa nýja ostabakkahugmynd hingað inn með slíkum.
Einfalt og súper gott!

Bakaðir ostar og veislubakki
Bakaður ostur með plómusultu
- 1 x brie að eigin vali
- 2/3 krukka af Plum Cheese Topper frá Stonewall Kitchen
- Lúka af pekanhnetum
- Timian
- Hitið ofninn í 180°C.
- Leggið ostinn í eldfast mót/á bökunarpappír.
- Hellið Plum Cheese Topper yfir og saxið næst hneturnar og bætið þeim við.
- Saxið timian og setjið smá fyrir bakstur og meira eftir að osturinn kemur úr ofninum.
- Bakið í um 15 mínútur og leyfið að standa í um 5 mínútur áður en þið njótið.
Bakaður ostur með sýrópi og pistasíum
- 1 x brie að eigin vali
- 4-5 msk. Stonewall Maine Maple Syrup
- Lúka af pistasíukjörnum
- Hitið ofninn í 180°C.
- Leggið ostinn í eldfast mót/á bökunarpappír.
- Saxið hneturnar og setjið á ostinn.
- Hellið sýrópinu yfir allt.
- Bakið í um 15 mínútur og leyfið að standa í um 5 mínútur áður en þið njótið.
Annað á veislubakka
- Stonewall Kitchen kex með salti
- Stonewall Kitchen kex með hvítlauk
- Stonewall Kitchen parmesan ostastangir
- Vínber, jarðarber, bláber
- Ferskar döðlur
- Möndlur
- Hráskinka
- Mandarína
- Súkkulaði og súkkulaðirúsínur

Það er svo gaman að prófa eitthvað nýtt og þessi Plum Cheese Topper er æði!

Maple sýrópið frá Stonwall Kitchen er líklega besta sýróp sem ég hef smakkað!

Namm!


































