Hvernig hljómar að slá upp grillveislu á nokkrum mínútum, hvort sem það er eftir vinnu á virkum degi eða um helgi! Hagkaup er með mikið úrval af tilbúnum réttum fyrir grillveisluna og undursamlegt sérvalið grillkjöt, sósur og meðlæti!
Nú er engin afsökun að hafa ekki tíma til að slá upp grillveislu!

Grillveisla
Við vorum með sérvaldar lambakótilettur í grillsmjöri, sætkartöflusalat, spergilkál salat, maís, hasselback kartöflur og kalda piparsósu. Kartöflurnar fóru fyrstar á grillið og síðan maísinn og kjötið á sama tíma. Þetta kemur allt í handhægum umbúðum og snilld bæði heima í grillveisluna og ég tala nú ekki um fyrir komandi útilegur og sumarbústaðarferðir í sumar!

Kjötið var dásamlegt og allt meðlætið líka! Sætkartöflusalatið og spergilkál salatið komu virkilega á óvart og má enginn láta þá snilld framhjá sér fara.

Það eru til ýmsar tegundir af köldum sósum frá Hagkaup og að þessu sinni völdum við piparsósuna.



































