„Marry me“ kjúklingapasta



⌑ Samstarf ⌑
einfaldur pastaréttur

Ég rakst á svona uppskrift á netinu á dögunum og hafði aldrei heyrt um „Marry me“ kjúklingapasta áður, haha! Komst að því að þetta pasta á rætur sínar að rekja til „Marry me Chicken“ sem er kjúklingaréttur sem er svo góður að það fær alla sem smakka hann til þess að vilja giftast þeim sem útbjó hann! Kannski skelli ég í „Marry me Chicken“ síðar en þetta pasta var dúndurgott og einfalt!

Mmm….

marry me pasta

„Marry me“ kjúklingapasta uppskrift

Fyrir um 5 manns

  • 500g DeCecco Rigatoni pasta
  • 600 g kjúklingalundir
  • 3 hvítlauksgeirar
  • 250 ml Oscar kjúklingasoð
  • 500 ml rjómi
  • 30 g parmesan ostur + meira til að rífa yfir
  • 200 g sólþurrkaðir tómatar
  • Salt & pipar
  • 1 tsk. paprikuduft
  • 1 tsk. oregano
  • 2-3 msk. maizenamjöl
  • Ólífuolía & smjör til steikingar
  • Fersk basilíka
  1. Sjóðið pasta al dente í söltu vatni.
  2. Skerið kjúklingalundirnar niður og steikið upp úr ólífuolíu, kryddið eftir smekk, færið yfir á disk þegar tilbúnar.
  3. Setjið smá smjörklípu á sömu pönnu og steikið hvítlaukinn við vægan hita þar til hann mýkist örlítið.
  4. Bætið þá kjúklingasoði, rjóma og rifnum parmesan osti saman við og pískið saman þar til kekkjalaust, þykkið eftir smekk með maizenamjöli og kryddið.
  5. Skerið sólþurrkaða tómata niður í minni bita og bætið saman við ásamt elduðum kjúklingnum og soðnu pastanu.
  6. Blandið vel saman og toppið með rifnum parmesan osti og ferskri basilíku.
pasta uppskrift

Ef þið kjósið heldur að nota penne eða farfalle DeCecco pasta í þennan rétt þá er það í fínu lagi!

fljótlegur kvöldmatur

Klárlega kvöldverður sem er tilbúinn á hálftíma!

rjómapasta uppskrift

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun