Ítalskar vefjur



⌑ Samstarf ⌑
tortilla vefjur bitar

Það elska allir einfaldar hugmyndir! Hér kemur sannarlega ein undurljúffeng og einföld. Þessir bitar henta vel í veislur, nestisboxið, hádegismatinn eða hvað sem ykkur dettur í hug.

nestishugmyndir

Ítalskar vefjur uppskrift

Um 15 bitar

  • 3 stórar mjúkar vefjur
  • ½ dós af rjómaosti með tómötum og basilíku frá MS
  • 1 stór tómatur
  • 1 lúka af ferskri basilíku
  • 3 sneiðar af hráskinku
  1. Smyrjið vefjurnar með rjómaostinum.
  2. Sneiðið tómatinn í þunnar sneiðar og skiptið niður í vefjurnar, um 4 sneiðar í hverja.
  3. Setjið vel af basilíku ofan á tómatsneiðarnar og loks hráskinkusneið.
  4. Rúllið þétt upp og skerið í bita.
nesti hugmyndir

Auðvitað má leika sér aðeins með hráefnið en rjómaosturinn er hér lykilatriði. Til dæmis er hægt að bæta við klettasalati eða sleppa hráskinku fyrir þá sem vilja svo það er um að gera að útbúa sína uppáhalds ítölsku vefju.

rjómaostavefjur
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun