Léttur pastaréttur í brauði



⌑ Samstarf ⌑
pastaréttur í veisluna

Hér kemur uppskrift úr Brauðréttabók Hagkaupa sem ég hef átt í rúmlega 20 ár! Ég elska að fletta í þessum gömlu bókum og rifja upp nostalgíuna. Þessi pastaréttur fór með mig í huganum aftur í Hamravíkina okkar þar sem ég gerði þetta pasta fyrir hvert einasta afmæli á sínum tíma. Ég ætla að reyna að vera dugleg að gera fleiri uppskriftir úr þessum bókum því það er svo gaman.

Einfalt og æðislega gott!

pastaréttur

Léttur pastaréttur í brauði

  • 500 g DeCecco penne pasta
  • 3 msk. Filippo Berio rautt pestó
  • 150 g grilluð paprika úr krukku
  • 3-5 sólþurrkaðir tómatar
  • ½ krukka fetaostur
  • 1 lúka ristaðar furuhnetur
  • Filippo Berio virgin ólífuolía
  • Salt og pipar
  • Kringlótt stórt brauð
  1. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka, kælið og setjið smá virgin ólífuolíu yfir og blandið vel.
  2. Næst má blanda pestóinu saman við pastað og skera niður tómata og papriku.
  3. Blandið síðan tómötum, papriku, fetaosti og furuhnetum saman við pastað og kryddið með salti og pipar eftir smekk.
  4. Holið stórt brauð að innan til að bera pastað fram í eða setjið í skál.
  5. Réttinn má snæða bæði heitan eða kaldan.
penne pastaréttur

Í Hagkaupsbókinni er reyndar notað DeCecco rigatoni svo að sjálfsögðu megið þið skipta penne út fyrir slíkt ef þið viljið heldur.

pasta og rósavín

Pestó pasta + rósavín er fullkomin tvenna.

pestópasta

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun