Kotasæluvefja með pestó og burrata



⌑ Samstarf ⌑
próteinríkur matur

Ég rakst á svipaða hugmynd á dögunum og það var eitthvað sem fékk mig til að vilja prófa. Þetta kom svona skemmtilega á óvart og var alveg hrikalega gott. Lykilatriði er að krydda kotasælublönduna svolítið vel og baka hana lengur en þið haldið.

kotasæluvefja

Kotasæluvefja með pestó og burrata

Uppskrift dugar í eina vefju eða fyrir 1-2 manns

Kotasæluvefja uppskrift

  • 1 lítil dós kotasæla (200g)
  • 1 egg
  • ½ tsk. salt
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • ½ tsk. basilkrydd (þurrkað)
  • Smá pipar
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Setjið öll hráefnin í blandara og blandið vel.
  3. Takið til um 20 x 20 cm eldfast mót/bökunarform og klæðið það með bökunarpappír.
  4. Spreyið botninn með matarolíuspreyi.
  5. Hellið kotasælublöndunni yfir og dreifið vel úr.
  6. Bakið í 25-30 mínútur þegar þar til yfirborðið er orðið vel gyllt/bakað).
  7. Kælið í um 5 mínútur áður en þið setjið áleggið yfir og rúllið upp.

Álegg fyrir kotasæluvefju

  • 2-3 tsk. ferskt pestó
  • 1 tómatur
  • 1 lítið avókadó
  • 1 lúka basilíka
  • 1 x burrata kúla
  • Balsamikgljái
  1. Smyrjið pestó yfir allan botninn.
  2. Skerið tómatinn í þunnar sneiðar og dreifið úr honum.
  3. Setjið næst avókadóbita og basilíku yfir tómatana.
  4. Rífið þá niður burrata kúluna og rúllið síðan öllu upp, skerið í tvennt og toppið með balsamikgljáa.
kotasæluvefja
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun