Texas kjúklingabringur



⌑ Samstarf ⌑
kjúklingabringur

Ef ykkur langar í eitthvað ótrúlega ferskt og bragðgott þá mæli ég með að þið prófið þennan rétt hér!

Mmm….

Salat og kjúklingur

Texas kjúklingabringur

Fyrir um 4 manns

Kjúklingabringur eldun

  • 1 pakki Ali kjúklingabringur í Texas-marineringu
  1. Grillið bringurnar á meðalheitu grilli í um 20 mínútur.
  2. Leyfið bringunum að standa í um 10 mínútur áður en þið skerið þær í sneiðar.

Maís-salat

  • 4 ferskir maískólfar
  • 1 msk. majónes
  • 1 msk. grísk jógúrt
  • 2 hvítlauksrif (rifin)
  • ½ lime (safinn)
  • ½ tsk. chilliduft
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • Salt og pipar eftir smekk
  1. Grillið maísinn á meðalheitu grilli í um 15 mínútur, snúið reglulega.
  2. Skerið næst maísinn utan af stilkunum og setjið í skál.
  3. Pískið saman önnur hráefni, hellið yfir maísbaunirnar og blandið saman við með sleikju.

Ferskt salat og dressing

  • 1 haus rósakál (romaine)
  • 200 g piccolo tómatar
  • 3 msk. kóríander
  • ¼ fetakubbur
  • 6 msk. ólífuolía
  • 1 lime (safinn)
  • 4 msk. hunang
  • Salt og pipar
  1. Skerið niður kál, tómata og saxið kóríander.
  2. Pískið saman ólífuolíu, limesafa, hunang og salt og pipar.
  3. Setjið síðan kál og tómata á disk, vel af dressingu yfir (geymið restina) og síðan kóríander og mulinn fetakubb.
  4. Berið fram með maís-salatinu og niðursneiddum kjúklingi.
Kjúklingur

Þessar kjúklingabringur eru með þeim betri sem ég hef smakkað!

grillaðar kjúklingabringur

Maís-salatið er æðislegt og fer einstaklega vel með kjúklingnum og ferska salatinu.

creamy corn

Einnig er gott að bera fram grillað naan brauð með fetaosti með þessum rétti.

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun