Peruterta



⌑ Samstarf ⌑
Gamaldags peruterta

Hér kemur hin eina sanna peruterta eins og í gamla daga. Súkkulaðikremið er það besta að mínu mati og það er einfalt að útbúa þessa dásemd. Alveg tilvalið að bjóða upp á þessa tertu á Þjóðhátíðardaginn sjálfan sem og aðra daga!

Mmmm….

hin eina sanna peruterta

Peruterta uppskrift

Svampbotnar uppskrift

  • 5 egg
  • 180 g sykur
  • 100 g hveiti
  • 60 g kartöflumjöl
  1. Hitið ofninn í 175°C.
  2. Klippið bökunarpappír í botninn á 2 x 20 cm formum og spreyið vel að innan með matarolíuspreyi.
  3. Þeytið egg og sykur þar til létt og ljóst, sigtið þá hveiti og kartöflumjöl saman við og blandið varlega saman.
  4. Skiptið deiginu niður í formin og bakið í 18-20 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út.
  5. Kælið alveg áður en þið setjið súkkulaðikremið og perurnar á.

Súkkulaðikrem og skreyting

  • 5 eggjarauður
  • 60 g flórsykur
  • 150 g Síríus suðusúkkulaði + 40 g til skrauts
  • 400 ml þeyttur rjómi
  • Um 400 g niðursoðnar perur + safi
  1. Bræðið suðusúkkulaðið og leyfið því að ná stofuhita á meðan þið undirbúið annað.
  2. Þeytið eggjarauður og flórsykur þar til þykknar.
  3. Blandið bræddu súkkulaðinu varlega saman við eggjablönduna og vefjið síðan þeytta rjómanum saman við með sleikju.
  4. Skerið 4-5 helminga af perum niður í þunnar sneiðar og tvo helminga í fjóra hluta (til að setja á toppinn).
  5. Setjið fyrri botninn á kökudisk og um 8 msk. af perusafa yfir botninn til að bleyta upp í honum.
  6. Leggið næst þunnar perusneiðar yfir hann allan og um 1/3 af súkkulaðikreminu.
  7. Þá má næsti botn fara ofan á og restin af kreminu, dragið það varlega niður hliðarnar og þekið alla kökuna með kremi.
  8. Rífið eða saxið 40 g af suðusúkkulaði og stráið yfir toppinn, skreytið síðan með perum.
  9. Geymið í kæli í nokkrar klukkustundir áður en þið njótið kökunnar.
súkkulaðirjómakrem

Suðusúkkulaðið er mikilvægt til að kremið verði fullkomið!

gamaldags peruterta

Svooo góð!

peruterta uppskrift
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun