Beikonsultupizza



⌑ Samstarf ⌑
shake&pizza pizza

Ég hef lengi verið aðdáandi beikonsultupizzunnar hjá Shake&Pizza enda var hún einu sinni valin fjórða besta pizza í heimi og geri aðrir betur! Ef þig langar að útbúa þessa dásamlegu pizzu heima hjá þér þá er allt til í slíka pizzagerð hjá Hagkaup! Hér er ég búin að setja saman myndband og innihald svo það getur hver sem er leikið þessa ljúffengu pizzu eftir!

Mmmmm….

Beikonsultupizza shake&pizza

Beikonsultupizza

  • 1 x pizzadeig frá Shake&Pizza
  • 1 krukka beikonsulta frá Shake&Pizza
  • Rifinn pizzaostur frá Shake&Pizza (um 2/3 poki)
  • Nokkur jalapeno í krukku
  • 100 g eldaður kjúklingur (fajitas eða mexíkó strimlar)
  • Pepperoni
  • Nachos flögur
  • Hvítlaukstopping frá Shake&Pizza
  • Hvítlauksolía frá Shake&Pizza
  1. Hitið ofninn í 220°C.
  2. Fletjið pizzadeigið út og komið því fyrir á bökunarpappír á bökunarplötu.
  3. Smyrjið beikonsultunni á botninn og setjið smá ost yfir.
  4. Næst má setja kjúkling og jalapeno og meiri ost.
  5. Pepperoni fer þá yfir og inn í ofn í 10 mínútur og bætið síðan nachos flögum ofan á eftir smekk.
  6. Bakið áfram í 5 mínútur eða svo, þar til kantarnir gyllast og nachos flögurnar einnig.
  7. Takið þá úr ofninum, setjið hvítlaukstopping yfir og að lokum hvítlauksolíu.
beikonsulta

Beikonsultan er klárlega lykilhráefni í þessari uppskrift!

beikonpizza

Hvítlaukstopping og hvítlauksolía eru síðan punkturinn yfir I-ið!

Beikonsultupizza
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun