Kjúklinganúðlur á kortéri



⌑ Samstarf ⌑
kjúklinganúðlur

Við í fjölskyldunni elskum asískan mat og getum ekki beðið eftir að ferðast aftur síðar til Asíu. Ef ég spyr yngstu mína hvað á að vera í matinn þá segir hún „bestu núðlurnar mínar“, hahaha! Það eru einmitt núðlur í Teriyaki sósu og ég leyfi mér að útfæra þær á mismunandi hátt. Hér stytti ég mér leið með elduðum kjúklingabringum og Teriyaki sósu á flösku og það tók án gríns kortér að útbúa þessa máltíð og hún sló aldeilis í gegn!

Einfalt og gott!

núðluréttur uppskrift

Kjúklinganúðlur uppskrift

Fyrir 4-5 manns

  • 1 pakki Go-tan lífrænar eggjanúðlur
  • 2 hvítlauksrif
  • ½ kúrbítur
  • 1 paprika
  • 4-5 egg
  • 2-3 eldaðar kjúklingabringur (ég notaði sous vide bringur í hvítlauk)
  • 1 flaska Go-tan Teriyaki woksósa
  • ½ flaska Go-tan Ketjap Sesam woksósa
  • Saxaðar jarðhnetur
  • Saxað kóríander
  • Saxaður vorlaukur
  • Ólífuolía til steikingar
  • Salt og pipar
  1. Sjóðið eggin í 6-8 mínútur (eftir því hvernig þið viljið hafa þau).
  2. Hitið vatn að suðu fyrir núðlurnar og hellið þeim í pottinn og sjóðið í um 5 mínútur. Setjið þær síðan undir kalt vatn áður en þið bætið á pönnuna með grænmetinu.
  3. Skerið niður eldaðan kjúkling, papriku og kúrbít á meðan núðlur og egg eldast.
  4. Steikið grænmetið upp úr ólífuolíu, kryddið eftir smekk. Rífið hvítlaukinn á pönnuna í lokin.
  5. Bætið kjúklingnum saman við grænmetið þegar það er búið að mýkjast og hellið báðum woksósunum saman við. Hitið og blandið saman.
  6. Næst fara núðlurnar á pönnuna og blandið öllu saman.
  7. Skammtið á diska og toppið með jarðhnetum, kóríander, vorlauk og eggi.
eggjanúðlur með kjúklingi

Eggjanúðlur í Teriyaki sósu eru eitt það besta!

teriyaki eggjanúðlur

Það er einfalt og fljótlegt að nota tilbúna Teriyaki sósu á pönnuna!

einfaldar núðlur
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun