Þegar það liggja vel þroskaðir bananar á borðinu þá hrópar slíkt á bakstur að mínu mati! Mér finnst gaman að gera tilraunir með bananabrauð og hér kemur líklega ein sú besta súkkulaði bananakaka sem ég hef prófað!
Svo djúsí og góð!

Súkkulaði bananakaka með karamellukremi
Súkkulaði bananakaka uppskrift
- 3 þroskaðir bananar
- 130 g smjör (brætt)
- 150 g púðursykur
- 1 egg
- 2 tsk. vanilludropar
- 120 g hveiti
- 60 g bökunarkakó
- 1 tsk. matarsódi
- ½ tsk. salt
- 150 g Síríus rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti
- Hitið ofninn í 175°C.
- Smyrjið um 20 cm breitt smelluform að innan með vel af smjöri.
- Blandið stöppuðum banönum, smjöri, sykri, eggi og vanilludropum saman í hrærivélarskálinni.
- Bætið öllum þurrefnunum næst saman við og blandið saman.
- Saxið rjómasúkkulaðið niður og blandið saman við með sleikju í lokin.
- Setjið í kökuformið og bakið í 25-30 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á en ekki blautu deigi.
- Kælið kökuna og útbúið kremið á meðan.
Karamellukrem uppskrift
- 100 g Nóa rjómakúlur
- 50 g Síríus suðusúkkulaði
- 100 ml rjómi
- Setjið allt í pott og bræðið saman við meðalhita þar til bráðið, hrærið vel í allan tímann.
- Takið af hellunni og leyfið að kólna og þykkna á meðan kakan kólnar.
- Smyrjið þá yfir kökubotninn og stráið Nóa smákroppi yfir til skreytingar.

Elska þetta súkkulaði hér en þið getið að sjálfsögðu leikið ykkur með aðrar Síríus bragðtegundir ef þið eigið aðra uppáhalds!



































