Pestó spaghetti



⌑ Samstarf ⌑
pestó spaghetti

Einfalt, fljótlegt, sumarlegt og gott! Það er ekki hægt að biðja um mikið meira og stundum þarf þetta alls ekki að vera flókið, mæli með þessari dásemd!

Mmmm….

pasta uppskrift

Pestó spaghetti

Fyrir 4-5 manns

  • 500 g DeCecco spaghetti
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 krukka Filippo Berio grænt pestó
  • 100 ml pastavatn
  • Parmareggio parmesanostur
  • Basilíka
  • Spírur/klettasalat
  • Salt + pipar
  • Filippo Berio ólífuolía
  • Filippo Berio jómfrúarolía
  1. Sjóðið spaghetti í vel söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
  2. Rífið hvítlauksrifin niður og steikið við vægan hita upp úr ólífuolíu.
  3. Bætið spaghetti á pönnuna og blandið saman með pestó, pastavatni og smá jómfrúarolíu, kryddið eftir smekk.
  4. Skammtið á diska og rífið vel af parmesanosti yfir og toppið einnig með basilíku og ferskum spírum sé þess óskað.
pestó spaghetti

Pestó og pasta fer einstaklega vel saman!

pasta og rósavín

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun