Lemon Curd ostakaka



⌑ Samstarf ⌑
sítrónu ostakaka

Ostakökur klikka aldrei og þessi hér er einstaklega sumarleg og frískandi! Það er einfalt að útbúa hana því það þarf ekki matarlím og hægt að stytta sér leið með því að kaupa tilbúið Lemon Curd. Mæli sannarlega með þessari hér fyrir næstu grillveislu eða sumarhitting. Það er líka auðvelt að útbúa hana og setja í krukku með loki til að taka með í útileguna eða ferðalagið.

lemon curd ostakaka

Lemon Curd ostakaka

Uppskrift dugar í 6-8 glös/skálar/krukkur

Botn

  • 200 g hafrakex
  • 40 g smjör
  1. Setjið kexið í blandara/matvinnsluvél og myljið niður þar til áferðin minnir á sand. Setjið smá til hliðar til að strá yfir í lokin.
  2. Bræðið smjörið og hellið yfir kexmylsnuna, blandið saman og skiptið niður í glösin/skálarnar og leyfið að kólna á meðan þið undirbúið ostakökuna sjálfa.

Lemon Curd ostakaka

  • 350 g rjómaostur við stofuhita
  • 150 g sykur
  • 1 tsk. vanillusykur
  • 80 g Lemon Curd (+ meira til skrauts)
  • 400 ml þeyttur rjómi frá Gott í matinn
  1. Þeytið saman rjómaost, sykur og vanillusykur þar til vel blandað.
  2. Hrærið þá Lemon Curd rólega saman við og vefjið að lokum þeytta rjómanum saman við allt.
  3. Setjið í sprautupoka og skiptið niður í glösin/skálarnar.
  4. Toppið með smá Lemon Curd og kexmylsnu.
  5. Kælið þar til bera á fram.
ostakaka uppskrift

Rjómi gerir gott betra!

ostakaka í glasi
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun