Hér kemur góð leið til að brjóta upp grillaðar pylsur! Algjör snilld og hver og einn getur auðvitað raðað á spjótin eftir sínum óskum. Kartöflurnar eru að mínu mati ómissandi með pylsunum og svo þarf ekkert annað nema tómatsósu og sinnep með þessu!
Einfalt og frábært!

BBQ pylsuspjót
Um 8 spjót
- 5 klassískar pylsur
- 3 chilli/ostapylsur (aðrar uppáhalds pylsur)
- 1 x paprika (rauð)
- ½ rauðlaukur
- Smælki kartöflur (eða hefðbundnar skornar niður)
- 2 msk. Heinz bbq sósa
- 2 msk. Heinz tómatsósa
- 1 msk. Heinz sinnep
- 1 tsk. soyasósa
- ½ tsk. hvítlauksduft
- ½ tsk. paprikuduft
- Sjóðið smælki þar til það er tilbúið, kælið aðeins niður áður en þið stingið spjótunum í gegn. Ef þið notið venjulega stærð af kartöflum er gott að skera líka í 4 bita.
- Skerið pylsur, papriku og rauðlauk niður í munnstóra bita.
- Þræðið upp á grillspjót og penslið með bbq blöndunni.
- Grillið á meðalheitu grilli í 8-10 mínútur og penslið restinni af bbq blöndunni yfir í lokin.
- Njótið með Heinz tómatsósu og sinnepi!

Mæli með að þið prófið þessa snilld!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































