Döðlunammi með rjómasúkkulaði



⌑ Samstarf ⌑
döðlunammi

Hér er á ferðinni hollara nammi en margt annað og klárlega orkuríkara! Það er auðvelt að útbúa þessa mola og best finnst mér að skera þá niður í bita og eiga í frystinum til að laumast í einn og einn þegar sykurlöngunin hellist yfir.

Mmm…..

döðlunammi með hnetum

Döðlunammi

  • 500 g ferskar döðlur
  • Hnetusmjör (um 6 msk)
  • 70 g Síríus rjómasúkkulaði
  • 70 g Síríus suðusúkkulaði
  • 50 g pistasíukjarnar
  • 3 msk. kókosflögur
  1. Skerið í döðlurnar miðjar, opnið þær og fjarlægið steininn. Raðið þeim opnum, þétt saman á bökunarpappír.
  2. Leggið annan bökunarpappír ofan á og fletjið aðeins út með kökukefli, fjarlægið síðan pappírinn.
  3. Smyrjið hnetusmjöri yfir döðlurnar og næst bræddu súkkulaðinu. Geymið smá súkkulaði til að skreyta með í lokin.
  4. Saxið pistasíukjarna og stráið yfir ásamt kókosflögum.
  5. Frystið í um 30 mínútur og skerið svo í bita.
  6. Best er að geyma bitana síðan í góðu boxi í frystinum.
döðlunammi með rjómasúkkuaði

Elska þetta súkkulaði!

döðlugott
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun