Ég var að gera smá tilraunir með humarpizzu á dögunum og hér hafið þið afraksturinn af því besta! Humarpizzur eru nefnilega oft aðeins með hvítlauksolíu/smjöri en stundum pizzasósu svo ég gerði með bæði og get ómögulega sagt hvor var betri því báðar voru dásamlegar!
Mmm…

Humarpizza með hvítlauksbotni
- 1 x pizzadeig
- 3 msk. Garlic Spread frá Stonewall Kitchen
- Rifinn ostur
- 1 lúka Mozzarellaperlur
- Um 200 g humarhalar (salt + pipar)
- Pizzakrydd (Herby garlic) frá Urban Accents
- Hvítlauksolía frá Stonewall Kitchen
- 1 lúka klettasalat
- Hitið ofn í 220°C.
- Mótið um 12 tommu pizzu úr deiginu og smyrjið Garlic Spread yfir botninn.
- Setjið næst vel af osti og dreifið úr Mozzarella perlunum.
- Þerrið humarhalana vel og kryddið með salti og pipar, raðið yfir ostinn.
- Kryddið vel með pizzakryddinu og bakið í um 15 mínútur í ofninum (skemur ef þið eruð að nota pizzaofn).
- Toppið með hvítlauksolíu og klettasalati þegar úr ofninum er komið.

Humarpizza með tómötum
- 1 x pizzadeig
- 3 msk. pizzasósa frá Stonewall Kitchen
- Rifinn ostur
- 1 lúka Mozzarellaperlur
- Um 200 g humarhalar (salt + pipar)
- Um 8 piccolo tómatar
- Pizzakrydd (Herby garlic) frá Urban Accents
- 4 tsk. basilpestó frá Stonewall Kitchen
- Hvítlauksolía frá Stonewall Kitchen
- Basilíka til skrauts
- Hitið ofn í 220°C.
- Mótið um 12 tommu pizzu úr deiginu og smyrjið pizzasósunni yfir botninn.
- Setjið næst vel af osti og dreifið úr Mozzarella perlunum.
- Þerrið humarhalana vel og kryddið með salti og pipar, raðið yfir ostinn.
- Skerið tómatana niður og dreifið yfir humarinn.
- Kryddið vel með pizzakryddinu og bakið í um 15 mínútur í ofninum (skemur ef þið eruð að nota pizzaofn).
- Toppið með hvítlauksolíu og basilíku þegar úr ofninum er komið.

Svo góðar!



































