Ef þig vantar eitthvað súper einfalt og gott fyrir næsta hitting, afmæli eða hvað eina, þá eru þetta molar sem þú vilt prófa!
Mmm…

Krönsí súkkulaðimolar
Um 30 stykki
- 2 pokar af Síríus suðusúkkulaðidropum (300 g)
- 1 msk. kókosolía
- 1 msk. hnetusmjör
- 130 g Rice Krispies
- 50 g saltstangir (brotnar niður)
- 1 poki Síríus súkkulaðiperlur (150 g)
- Bræðið súkkulaðidropa og kókosolíu saman og hrærið síðan hnetusmjörinu saman við.
- Blandið Rice Krispies, saltstöngum og súkkulaðiperlum saman við súkkulaðiblönduna og hrærið saman með sleikju.
- Setjið um eina matskeið af blöndu á bökunarpappír fyrir hvern mola og setjið í kæli í að minnsta kosti 30 mínútur áður en þeirra er notið.
- Molarnir geymast síðan best í ísskáp í loftþéttu íláti.

Síríus súkkulaðidroparnir henta vel í þessa uppskrift en það má einnig nota klassískt Síríus suðusúkkulaði ef þið viljið frekar.



































