Hér er á ferðinni hið fullkomna nesti fyrir veturinn og skemmtileg tilbreyting frá pizzasnúðum, ostaslaufum eða skinkuhornum. Áður en ég náði að taka þetta af plötunum til að setja í frysti kláraðist helmingurinn en það er líka allt í lagi því svona lagað er svo dásamlega gott nýbakað og volgt!
Mæli með í nestisbox vetrarins!

Pizzasnúningur
Um 35-40 stk
- 100 g smjör
- 500 ml mjólk
- 1 pk þurrger (um 12g)
- 830 g hveiti
- 60 g sykur
- ½ tsk. salt
- 16 Ali skinkusneiðar
- Um 5 lúkur rifinn ostur
- Um 6 msk. pizzasósa
- Oregano krydd
- 1 x egg
- Bræðið smjör í potti og hitið mjólkina síðan útí þar til blandan er volg, takið þá af hellunni og bætið þurrgerinu saman við, leyfið að standa í um 5 mínútur á meðan annað er undirbúið.
- Setjið hveiti, sykur og salt í hrærivélarskál með króknum og blandið saman.
- Hellið gerblöndunni varlega saman við og hnoðið vel saman.
- Setjið deigkúluna í olíuborna stóra skál, plast yfir og leyfið að hefast í um 45 mínútur.
- Skiptið deiginu í tvo hluta og þrýstið/fletjið út í um 40×40 cm.
- Smyrjið þunnu lagi af pizzasósu yfir allt saman, raðið skinkusneiðum á helminginn ásamt osti og kryddi.
- Flettið þá helminginn sem er ekki með skinku og osti yfir hinn og þrýstið aðeins niður og jafnið deig.
- Skerið í um 2 cm þykkar ræmur, snúið uppá og raðið á bökunarplötu, leyfið að hefast að nýju í um 20 mínútur.
- Hitið ofninn á meðan í 190°C, penslið deigið með pískuðu eggi og bakið í um 20 mínútur eða þar til vefjurnar verða vel gylltar.

Ali skinkan er sú besta að mínu mati og hana hef ég keypt alla tíð!



































