Þessi kaka! Ég er alltaf að prófa útfærslur á súkkulaðikökum því þær eru sívinsælar og gaman að prófa eitthvað nýtt. Þessi er þétt í sér en ofboðslega djúsí og góð og kremið er undursamlegt. Það var gaman að þekja hana með Nóakroppi og það passaði heldur betur með þessu öllu saman!
Mmmmm….

Súkkulaðikaka með Nóakroppshjúp
Botnar
- 260 g hveiti
- 50 g bökunarkakó
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. matarsódi
- 200 g sykur
- 100 g púðursykur
- 1 tsk. salt
- 110 ml ljós matarolía
- 3 egg
- 180 g sýrður rjómi
- 2 tsk. vanilludropar
- 240 ml uppáhellt kaffi (heitt)
- Hitið ofninn í 170°C og spreyið 2 x 20 cm form að innan með matarolíuspreyi, einnig gott að klippa smjörpappír í botninn.
- Sigtið hveiti, kakó, lyftiduft og matarsóda í hrærivélarskál og hrærið síðan sykri, púðursykri og salti saman við.
- Pískið matarolíu, egg, sýrðan rjóma og vanilludropa saman í skál og blandið saman við þurrefnin.
- Hellið að lokum heitu kaffinu saman við og skiptið deiginu jafnt í formin (deigið er þunnt).
- Bakið í um 30 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi.
- Kælið og skerið örlítið af toppnum til að jafna botnana áður en þið setjið kremið á.
Krem og skreyting
- 380 g smjör við stofuhita
- 360 g flórsykur
- 70 g bökunarkakó
- 2 tsk. vanilludropar
- 3 msk. uppáhellt kaffi
- ½ tsk. salt
- 130 g Síríus suðusúkkulaði (brætt)
- 2 x pokar af Nóa Kroppi (2 x 240 g)
- Þeytið smjörið þar til það verður létt og ljóst (um 5 mínútur).
- Bætið flórsykri, bökunarkakó, vanilludropum, kaffi og salti saman við og þeytið áfram.
- Bætið að lokum bræddu súkkulaðinu saman við og blandið vel, skafið niður á milli.
- Smyrjið þykku lagi af kremi á milli botnanna (um 2 cm) og næst má þekja hana með góðu lagi af kremi á hliðum og topp.
- Að lokum má hylja hana eins og hægt er með Nóakroppi. Best er að taka fulla lúku, leggja höndina upp við kökuna og draga kúlurnar upp hliðina, klárið svo skreytinguna með því að þekja toppinn með Nóakroppi.

Það er einföld og falleg leið að skreyta köku með Nóakroppi!



































