Key Lime Pie er einstaklega frískandi og góður eftirréttur. Venjulega er þetta útbúið sem kaka þar sem bæði botn og fylling er bakað í ofni. Hér höfum við hins vegar mun einfaldari útfærslu sem tekur enga stund að útbúa og bragðast dásamlega!
Mmm….

Key Lime Pie í glasi
Uppskrift dugar í 4-6 glös
- 120 g hafrakex
- 1 msk. ljós púðursykur
- 40 g smjör (brætt)
- 1 krukka Key Lime Curd frá Stonewall Kitchen
- 250 ml rjómi
- 1 msk. flórsykur
- 1 lime (til skrauts)
- Smá hlynsýróp
- Setjið hafrakex og sykur í blandara og blandið þar til áferðin minnir á sand.
- Setjið hlynsýróp í eina skál og hafrakexmulninginn í aðra. Dýfið smá hluta af kanti glassins í sýróp og síðan í hafrakexmulninginn til að skreyta það.
- Hrærið næst restinni af hafrakexmulningnum saman við brætt smjörið og skiptið niður í glösin og þjappið aðeins niður og upp kantana.
- Setjið næst um 2 msk. af Key Lime Curd í hvert glas og dreifið yfir hafrakexið.
- Þeytið þá rjóma og flórsykur saman og skiptið niður í glösin.
- Að lokum má skreyta með því að rífa smá lime-börk yfir rjómann og setja eina lime-sneið á glasið.

Ef þið viljið prófa eitthvað nýtt í eftirréttamálum mæli ég sannarlega með!



































