Ég elska þegar ég get stytt mér leið í að útbúa eitthvað undurljúffengt, fljótlegt og hollt! Mexíkósúpa er eitthvað sem slær alltaf í gegn og með því að nota tilbúna eldgrillaða kjúklinginn frá Hagkaup verður súpugerðin leikur einn!
Þetta verður ekki mikið einfaldara!

Mexíkósúpa á núlleinni
Fyrir 4-6 manns
- 1 x eldgrillaður kjúklingur frá Hagkaup
- 1 rauð paprika
- ½ laukur
- 400 g hakkaðir tómatar
- 250 g salsasósa
- 500 ml vatn
- 200 g rjómaostur
- 250 g rjómi
- Salt, pipar, hvítlauksduft
- Kjötkraftur
- Ólífuolía
- Sýrður rjómi
- Nachos flögur
- Rifinn ostur
- Skerið/rífið kjúklinginn niður í bita.
- Skerið papriku í strimla og saxið lauk, steikið upp úr ólífuolíu og kryddið eftir smekk.
- Bætið öðrum hráefnum í pottinn þegar grænmetið mýkist, hrærið vel saman og leyfið aðeins að malla.
- Að lokum fer rifni kjúklingurinn saman við.
- Njótið súpunnar með því að toppa hana með sýrðum rjóma, rifnum osti og nachosflögum.

Allt hráefni í þessa uppskrift fæst í Hagkaup!


































