„Mac & Cheese“ eða makkarónur og ostur er einfaldur réttur og elskar yngsta dóttir mín þennan mat! Ég myndi segja það taki í mesta lagi 20 mínútur að útbúa hann með frágangi og bera á borð!

Makkarónur og ostur
Fyrir um 4 manns
- 300 g makkarónupasta
- 50 g smjör
- 20 g hveiti
- ½ tsk. salt
- ½ tsk. hvítlauksduft
- 250 ml nýmjólk
- 50 g sýrður rjómi
- 200 g Cheddar ostur frá Gott í matinn
- Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
- Bræðið smjörið við meðalhita og blandið hveiti, salti og hvítlauksdufti saman í litla skál.
- Þegar smjörið er bráðið má píska hveitiblöndunni saman við og bæta síðan mjólkinni útí í nokkrum skömmtum. Hækkið örlítið hitann og pískið vel þar til kekkjalaus blanda hefur myndast.
- Bætið þá sýrða rjómanum saman við og pískið aftur þar til kekkjalaust og pískið við meðalhita þar til blandan þykknar örlítið (3-5 mínútur).
- Takið þá af hellunni og bætið ostinum saman við, pískið þar til hann er bráðinn.
- Bætið nú pastanu saman við og blandið saman með sleif/sleikju og njótið strax.

Mæli með að þið prófið!



































