Kókosstangir með berjum og dökku súkkulaði



⌑ Samstarf ⌑
hollt nammi

Haustgírinn fær mig alltaf til að koma með nokkrar nýjar hollustu uppskriftir sem er bara frábært og mikilvægt að hafa jafnvægi í þessu öllu saman. Það er nefnilega hægt að útbúa fullt af gómsætu nammi á heilsusamlegan máta. Hér hafið þið dásamlegar kókosstangir sem tilvalið er að eiga í frystinum og grípa sér bita þegar sykurlöngunin hellist yfir.

Mmmm….

hollt nammi hugmyndir

Kókosstangir með berjum og dökku súkkulaði

Um 10 stykki

  • 200 g kókosmjöl (gróft)
  • 220 g jarðarber (frosin eða fersk)
  • 120 g hindber (frosin eða fersk)
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 3 msk. hlynsýróp
  • 300 g Valor 80% dökkt súkkulaði
  • 2 msk. kókosolía
  • Ristaðar kókosflögur til skrauts
  1. Setjið kókosmjöl, ber, vanilludropa og sýróp í blandara og blandið vel.
  2. Hellið í brauðform sem búið er að klæða að innan með bökunarpappír.
  3. Sléttið úr og frystið í um tvær klukkustundir og takið þá út og skerið í lengjur.
  4. Bræðið súkkulaðið og þynnið með kókosolíunni.
  5. Dýfið hverri lengju í súkkulaði, leggið á bökunarpappír og toppið með ristuðum kókosflögum.
  6. Best er að geyma stangirnar í loftþéttu íláti í frystinum.
dökkt súkkulaði sykurlaust

Sykurlausa súkkulaðið frá Valor hentar mjög vel í heilsusamlegar nammi uppskriftir!

kókos og berjastangir
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun